KRISTINN MÁR PÁLMASON
KRISTINN MÁR PÁLMASON
„Þegar ég kem hingað inn langar mig svo að fara að mála,“ sagði önnur Hillbilly-systirin þegar hún gekk inn á vinnustofu Kristins Más Pálmasonar. Veggir fullir af litlum formum, listaverkum – kláruðum og í vinnslu, blað sem á stóð sellerí, ljósakróna á fáránlegum stað og tónlist í bakgrunni. Kristinn spjallaði um skrimtið, árin í London og bauð Hillbilly að smakka níkótín-töflur.
Fylgist með Kristni:
www.kristinnmp.com
insta: @kristinnmp