UM HILLBILLY

HVER ER HILLBILLY?

Hillbilly spyr fullt af listamönnum fullt af spurningum á vinnustofum þeirra. Vefritinu er ætlað að bæta servíettu í servíettusafn íslenskrar myndlistar.

Ragga er listakona og húsmóðir í bland og kokteillinn bragðast vel. Ragga grípur augnablikið. Vinnur út frá upplifun sinni og tilfinningu hverju sinni. Hún nemur umhverfið betur en flestir. Hún leitast við að finna fullkomið persónulegt jafnvægi.

Magga er hönnuður með siðferðiskennd. Hún vill að við séum góð við okkur sjálf, alla aðra og um-hverfið. Magga vinnur út frá pælingum sínum hverju sinni eða einhverju sem fólk segir henni að gera.
Magga gagnrýnir neyslu-samfélagið og flest.

Hún er tvær sálir, einn líkami. Hillbilly er síamstvíburinn okkar, hún tengir okkur og sameinar okkur, blandar okkur saman.

Tvær stelpur, eitt hár.

 

HAFA SAMBAND

Ragga Weisshappel
Magga Weisshappel
hillbilly@husoghillbilly.com